Skref í rétta átt býður uppá lífsstíl- og heilsumarkþjálfun sem kallast Náum áttum. Markmið þjálfunarinnar er að aðstoða einstaklinginn við vera besta eintakið af sjálfum sér. Um einstaklingsmiðaða nálgun er að ræða sem hefst þó alltaf á 40 mín byrjunarviðtali. Viðtalið getur farið fram augliti til auglitis, í gegnum Skype eða í gegnum síma.
Í þjálfuninni er m.a. farið yfir markmið, næringu, fæðuval, hreyfingu, venjur, hindranir, líðan, samskipti, svo eitthvað sé nefnt.
Fyrirspurnum verður svarað í skilaboðum eða á netfanginu skrefirettaatt@gmail.com
Hlakka til að heyra frá ykkur
heilsukveðja, Hulda Sólveig íþróttafræðingur og heilsumarkþjálfi